Spáð er norðaustan hvassviðri norðvestan til á landinu fram á föstudag og með því er von á snörpum vindhviðum við fjöll.
Úrkoma gengur yfir landið og rignir mest austan- og norðanlands. Sérstaklega er varað við úrkomu á norðanverðum Ströndum og nágrenni. Búast má við verulegu afrennsli á norðanverðu landinu og frá jöklum miðhálendisins. Ferðafólk er hvatt til að gæta varúðar en spáin gildir fram á föstudag, morgun.
Hér er hægt að sjá kort sem sýnir rennsli í ám
Líkt og kom fram á mbl.is í gærkvöldi var fjöldahjálparstöð opnuð á Seyðisfirði.
Veðurspá fyrir næsta sólarhring:
Norðaustlæg átt og rigning, 13-20 m/s norðvestan til, en 5-13 annars staðar. Víða súld eða rigning, en úrkomulítið suðvestanlands. Hiti 5 til 13 stig norðanlands, svalast á Vestfjörðum, en 10 til 17 stig sunnan heiða.
Á föstudag:
Norðan 10-18 m/s um landið norðan- og norðvestanvert og talsverð rigning. Mun hægari sunna- og austan til og dálitlar skúrir, en þurrt og bjart að mestu suðvestanlands. Hiti 4 til 12 stig, kaldast norðvestan til, en 11 til 16 stiga hiti S-lands að deginum.
Á laugardag:
Minnkandi norðlæg átt, 5-10 m/s síðdegis. Léttskýjað suðvestanlands, en skýjað og víða dálítil væta norðan til. Annars skýjað með köflum. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Á sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða bjart með köflum, en líkur á dálítilli vætu syðst. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast suðvestan til.
Á mánudag og þriðjudag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir vestlæga átt með skýjuðu og úrkomulitlu veðri. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast suðaustan lands.