Búið að tryggja svæðið

Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur að störfum. Myndin er úr safni.
Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur að störfum. Myndin er úr safni. mynd/OR

Heitavatnslaust er á Skólavörðustíg, Laugavegi og Bergstaðarstræti í Reykjavík. Heitt vatn er komið á í Ásvallagötu en lokað er fyrir á Freyjugötu. Þar streymdi heitt vatn upp úr götum í morgun. Búið er að ná tökum á því og tryggja svæðið, samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni. Fólk beðið um að fara að öllu með gát.

Vegna viðgerðar á loka í dælustöð í Öskuhlið í nótt féll niður þrýstingur á heitu vatni í Skólavörðuholtinu og vesturbæ Reykjavíkur.

Í framhaldinu sprungu heitavatnslagnir í nokkrum götum, meðal annars í Freyjugötu og Ásvallagötu.

Fólki er bent á að passa að heitavatnskranar séu ekki opnir á meðan á viðgerð stendur. Til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju.

Ef fólk verður vart við að heitt vatn nái upp á yfirborð í götum er bent á að hafa samband við þjónustuvakt Orkuveitu Reykjavíkur í síma 516-6200.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert