Grunaður um líkamsárás

Lögreglustöðin Hverfisgötu
Lögreglustöðin Hverfisgötu mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Ungur maður í mjög annarlegu ástandi var handtekinn við skemmtistað í Hafnarstræti rúmlega hálf eitt í nótt.  Maðurinn er grunaður um líkamsárás og fór ekki að fyrirmælum lögreglu á vettvangi. Hann er vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hann.

Ölvaður maður var handtekinn í heimahúsi í austurborginni um átta leytið í gærkvöldi.  Hann gistir fangaklefa þar sem hann er látinn sofa úr sér vímuna. 

Lögreglan handtók ungan mann í Kópavogi um níu í gærkvöldi en hann er grunaður um innbrot í bifreiðar. Maðurinn vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls.

Tveir voru teknir í nótt fyrir akstur bifreiða undir áhrifum  vímuefna. Annar fíkniefna en hinn áfengis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert