Kristján Guy ráðinn framkvæmdastjóri

Kristján Guy Burgess
Kristján Guy Burgess

Samfylkingin hefur ráðið Kristján Guy Burgess sem framkvæmdastjóra. Hann var valinn úr stórum hópi umsækjenda til að stýra daglegum rekstri flokksins og hafa yfirumsjón með málefnastarfi og stefnumótun, samkvæmt fréttatilkynningu frá Samfylkingunni.

Kristján hefur að undanförnu starfað fyrir Atlantshafsbandalagið sem fulltrúi þess gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York. Árin 2009-2013 var hann aðstoðarmaður utanríkisráðherra og frá 2005-2009 rak hann ráðgjafarfyrirtæki í alþjóðamálum. Hann býr yfir áralangri reynslu af störfum við fjölmiðla og hefur komið að margvíslegu kosningastarfi. Kristján er með BA próf í sagnfræði og heimspeki frá Háskóla Íslands og meistarapróf í alþjóðastjórnmálum og alþjóðalögum frá háskólum í London og Kosta Ríka. Hann mun hefja störf 1. nóvember.

Kristján er í sambúð með Rósu Björk Brynjólfsdóttur og þau eiga þrjú börn á aldrinum 2-11 ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert