Fagnar frumkvæði Eyglóar

SUF fagnar frumkvæði velferðarráðherra þegar það kemur að móttöku á …
SUF fagnar frumkvæði velferðarráðherra þegar það kemur að móttöku á flóttafólki. AFP

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna fagnar frumkvæði velferðarráðherra, Eyglóar Harðardóttur, í málefnum flóttafólks og lýsir jafnframt yfir ánægju með ákvörðun forsætisráðherra að skipa ráðherranefnd um flóttamannavandann. Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu.

„Sá gífurlegi vandi sem steðjar að fólki sem flýr heimili sín vegna stríðsátaka er átakanlegur. Ísland hefur alla burði til að leggja sitt af mörkum, þar verða ríki, sveitarfélög og einstaklingar að hjálpast að. Velviljinn sem endurspeglast í öllum þeim sjálfboðaliðum sem hafa sprottið upp og boðist til þess að aðstoða flóttafólk er aðdáunarverður og gefur gott fordæmi hvernig samfélög geta í sameiningu leyst erfið vandamál,“ segir ennfremur.

Í ályktuninni kemur fram að umræða um flóttafólk einkennist oft á tíðum af mikilli vanþekkingu og fordómum.

„Stjórn SUF telur lykilatriði að vel sé vandað til verka, að vel sé tekið á móti fólki, haldið utan um það og því sé veitt nauðsynleg aðstoð. Sé slíkt gert muni það svo sannarlega skila sínu til baka til samfélagsins. Það bæði getur og vill gera það.“

Í ályktuninni er einnig bent á það að núverandi ríkisstjórn hafi nú þegar tekið á móti umtalsvert fleira flóttafólki en síðasta ríkisstjórn gerði á heilu kjörtímabili.

„Árin 2009 og 2011 var ekki tekið á móti einum einasta flóttamanni og árið 2010 var tekið á móti 6. Af þessum ástæðum hvetur stjórn SUF alla flokka á Alþingi til að sýna samtöðu í þessu máli. Saman getum við gert ótrúlega hluti,“ segir í ályktun SUF. 

Eygló sagði í Sprengisandi í gær að vildi taka á móti fleiri flóttamönnum. Þar biðlaði hún m.a. til al­menn­ings um að leggja sitt af mörg­um við að aðstoða flótta­fólk sem þegar er komið til lands­ins að læra á lífið hér á landi.

Eygló Harðardóttir.
Eygló Harðardóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert