Hin látna var frá Ítalíu

Hin látna var fædd árið 1949 og var hún ítalskur …
Hin látna var fædd árið 1949 og var hún ítalskur ríkisborgari. mbl.is

Konan sem lést í bílslysi á Suðurlandsvegi við ána Klifanda skammt austan Péturseyjar síðdegis gær var ítalskur ríkisborgari, fædd árið 1949. Að sögn lögreglu á Suðurlandi er ekki tímabært að gefa upp nafn hennar að svo stöddu.

Ekki er vitað af hverju bíllinn hafnaði utan vegar en ökumaður bílsins er ekki grunaður um hraðakstur. Ökumaðurinn slasaðist alvarlega og er honum haldið sofandi í öndunarvél.

Fjórir erlendir ferðamenn voru í bifreiðinni, allt ítalskir ríkisborgarar um sextugt. Tildrög slyssins eru óljós en lögreglan á Suðurlandi hefur lýst eftir vitnum að slysinu.

Frétt mbl.is: Haldið sofandi í öndunarvél

Frétt mbl.is: Lýsa eftir vitnum að slysinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert