Skoðar beiðni um endurskoðun matsskýrslu

Skipulagsstofnun hefur til meðferðar beiðni frá Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi um að stofnunin taki ákvörðun um hvort endurskoða þurfi að hluta eða í heild matsskýrslu Landsvirkjunar frá apríl 2003 um mat á umhverfisáhrifum virkjunar Þjórsár við Núp, (Hvammsvirkjun), á grundvelli 12. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum.

Nálgast má gögn vegna málsins á vefsíðum Skipulagsstofnunar og Landsvirkjunar.

Almenningi er gefinn kostur á að kynna sér málið og koma athugasemdum á framfæri til og með 28. september 2015. Þær þurfa að berast bréflega til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið skipulag@skipulag.is, segir í frétt frá stofnuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert