Bílslys í Skagafirði

Sjúkrahúsið Akureyri
Sjúkrahúsið Akureyri mbl.is/Sigurður Bogi

Ökumaður var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri eftir að hafa ekið útaf veginum við Álftagerði í Skagafirði um níu leytið í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Sauðárkróki er ekki vitað nákvæmlega hvað olli slysinu en maðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert