Borgin vill taka við flóttafólki

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Þverpólitísk tillaga liggur fyrir fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag um að teknar verði upp viðræður við ríkið um móttöku flóttafólks. Samkvæmt henni verður Degi B. Eggertssyni borgarstjóra falið að hefja viðræðurnar og halda borgarráði upplýstu um framvindu þeirra. Tillagan er svohljóðandi:

„Borgarstjórn samþykkir að óska eftir viðræðum við ríkisvaldið um hlutverk og aðkomu borgarinnar að móttöku flóttafólks og lýsir sig reiðubúna til að leggja sitt af mörkum til að tryggja sem flestum öruggt skjól. Borgarstjóra er falið að hefja viðræðurnar, upplýsa borgarráð um framgang þeirra á meðan á viðræðunum stendur og leggja svo fram útfærða, tímasetta og kostnaðarmetna áætlun þegar niðurstaða liggur fyrir.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert