Mótmæla áformum um nýjan skóla

Reiturinn þar sem fyrirhuguð áform um uppbyggingu eru.
Reiturinn þar sem fyrirhuguð áform um uppbyggingu eru.

Íbúar í götum sem liggja við Eyrarland og Fossvogsveg í Fossvogi hafa nú sett af stað undirskriftasöfnun til að mótmæla fyrirhuguðum áform­um um bygg­ingu barna­skóla á reit í hverf­inu, þar sem þeir telja aukna um­ferð um veg­ina munu auka slysa­hættu veru­lega.

Reit­ur­inn sem um ræðir af­mark­ast af Foss­vogs­vegi, Árlandi og göngu­stíg­um til móts við Kjarr­veg og Klif­veg. Borg­ar­ráð fól um­hverf­is- og skipu­lags­sviði að vinna deili­skipu­lag að reitn­um þar sem verði m.a. gert ráð fyr­ir nýj­um skóla Hjalla­stefn­unn­ar, íbúðum og bú­setu­úr­ræði fyr­ir fatlaða. Stefnt er að því að lýs­ing og hug­mynd að deili­skipu­lag­inu verði lögð fyr­ir ráðið eigi síðar en í októ­ber nk.

Á annað hundrað skrifað und­ir

Tölu­verð óánægja rík­ir hjá íbú­um á svæðinu um áformin um upp­bygg­ingu skóla, þar sem nýr skóli myndi leiða til auk­inn­ar um­ferðar sem þeir telja hverfið ekki vera hannað fyr­ir né þola. „Auk­in um­ferð um hvort sem er Eyr­ar­land, Árland eða Foss­vogs­veg eyk­ur veru­lega slysa­hættu enda akst­urs­skil­yrði erfið. Göt­urn­ar eru þröng­ar, mjög erfitt er að sjá inn í þver­göt­ur, bratti nokk­ur og snjóþyngsli veru­leg yfir vetr­ar­mánuði,“ segir í mót­mæla­bréfi sem á annað hundrað íbú­ar hafa skrifað undr. Þegar búið verður að safna 200 und­ir­skrift­um verður bréfið sent til Reykjavíkurborgar.

Þá benda íbú­ar einnig á að börn í Foss­vogi fari um dal­inn gang­andi eða á hjólum, enda sé t.a.m. hvatt til þess af skóla­yf­ir­völd­um í hverf­inu.

Engin ákvörðun verið tek­in um upp­bygg­ingu

S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs segir enga ákvörðun hafa verið tekna um uppbyggingu á svæðinu, en borgarráð hafi falið umhverfis- og skipulagsráði að vinna deiliskipulag á reitnum þar sem gert væri ráð fyrir þessari starfsemi. „Þetta deiliskipulag verður unnið og að því loknu sent í auglýsingu. Þá geta íbúar og aðrir komið á framfæri athugasemdum. Við erum að kanna hvort þetta getur gengið upp á þessum stað,“ segir hann.

Tillagan var sett fram með það fyr­ir sjón­um að leysa framtíðar­hús&næðismál Hjallastefn­unn­ar bæði hvað varðar leik­skóla og barna­skóla, en Hjallastefnunni var sagt upp leigu­samn­ingi um aðstöðu á lóð Há­skól­ans í Reykjavík við Öskjuhíð. Hefur starf­sem­in þar sprengt utan af sér, en einnig þarf hluti hennar að víkja vegna fyr­ir­hugaðra breyt­inga á deili­skipu­lagi svæðisins.

Reiturinn er hins vegar það stór að skólnn og skólalóðin þarf einungis hluta hans. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að uppbygging íbúðabyggðar samræmist bæði aðalskipulagi og húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar. Þá telur velferðarsvið að hagkvæmt væri að byggja þar einnig upp búsetuúrræði fyrir fatlaða.

All­ar at­huga­semd­ir verða tekn­ar til skoðunar

Björn segir að markmiðið sé að auglýsa tillöguna og óska eftir athugasemdum í október eða nóvember, en hann eigi von á því að fólk á svæðinu muni fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri fyrir þann tíma sem hluta af gagnaöflun við vinnslu deiliskipulagsins. Aðspurður um það hvort óánægja íbúa muni hafa áhrif svarar hann játandi. „Allar athugasemdir eru teknar til athugunar og skoðað hvort þær séu þess eðlis að þær séu til breytinga. Ef þetta er þannig að það verði sýnt fram á að þetta gangi ekki upp samgöngulega þá þarf að bregðast við því,“ segir hann.

S. Björn Blöndal, fomaður borgarráðs.
S. Björn Blöndal, fomaður borgarráðs.
Óánægja ríkir hjá íbúum í Fossvogi vegna áforma um uppbyggingu …
Óánægja ríkir hjá íbúum í Fossvogi vegna áforma um uppbyggingu skóla á neit í hverfinu. mbl.is/Júlíus
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert