Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna reyks sem kemur út um glugga í húsi í Gvendargeisla í Grafarholti í Reykjavík. Þar var tilkynnt um eld í íbúð á annarri hæð. Enginn var inni í íbúðinni er eldurinn kom upp.
Slökkvibílar og sjúkrabílar eru komnir á staðinn.
Uppfært kl. 13.30: Verið er að reykræsta húsið.
Ný frétt: Búið að slökkva eldinn