Gefa 400-500 matargjafir á viku

Mat pakkað í poka hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur.
Mat pakkað í poka hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. mbl.is/Ernir

Þeim sem fá matargjafir frá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur hefur fjölgað jafnt og þétt og álagið var orðið of mikið á þeim eina degi vikunnar sem úthlutun fór fram á.

Frá og með næstu viku verður fyrirkomulaginu breytt á þann veg að úthlutað verður tvo daga í viku, annan daginn kemur fjölskyldufólk og hinn daginn þeir sem búa einir.

Í umfjöllun um þessa starfsemi í Morgunblaðinu í dag segir Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, tilganginn vera að veita betri þjónustu. Hún segir að 400 – 500 leiti aðstoðar nefndarinnar í viku hverri og að talsverð aukning hafi orðið meðal yngra fólks.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert