„Góðvild ykkar hefur snert mig djúpt“

Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra.
Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra. Styrmir Kári

„Góðvild ykkar og vilji til að hjálpa hefur snert mig djúpt,“ skrifar Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, á Facebook-síðu sem einmitt ber nafn hennar, Kæra Eygló Harðar - Sýrland kallar. Á síðunni bjóða margir fram aðstoð sína svo taka megi við fleiri flóttafólki hér á landi.

Í færslunni sem Eygló skrifar í morgun, rekur hún hvað hefur gerst í flóttamannamálinu í vikunni:

„Forsætisráðherra skipaði ráðherranefnd á þriðjudaginn um málefni flóttamanna og innflytjenda. Ásamt honum eiga fast sæti í nefndinni fjármálaráðherra, utanríkisráðherra, innanríkisráðherra og ég, auk þess að menntamálaráðherra mun koma inn vegna fræðslu- og skólamála og heilbrigðisráðherra vegna heilbrigðisþjónustu. Aðrar ráðherra munu jafnframt geta tekið sæti ef þess þarf. Sérfræðingahópur ráðherranefndarinnar hefur þegar fundað og nefndin mun hittast í fyrsta sinn á morgun.

Í velferðarráðuneytinu höfum við haft samband við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og upplýst um áhuga okkar á að taka á móti flóttamönnum frá Sýrlandi. Stofnunin hefur bent á að vandinn sé mestur í flóttamannabúðum í nágrannaríkjum Sýrlands og þá sérstaklega Líbanon og brýnast að taka við flóttamönnum þaðan. Við höfum jafnframt sett á fót verkefnisstjórn innan ráðuneytisins sem fundar daglega til að standa vel að verkefninu.

Hjá Rauða krossinum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið opið hús í gær og fyrradag þar sem fjöldi fólks kom til að fylgja eftir umsókn sinni um að gerast sjálfboðaliðar. Víða um land eru deildir Rauða krossins að hafa samband við fólk á sínu svæði. Áberandi var hversu opið fólkið var fyrir að taka þátt í hinum ýmsu velferðarverkefnum hjá Rauða krossinum, bæði aðstoð við flóttamenn og hælisleitendur en við aðra bágstadda á borð við aldraða, fatlað fólk og fanga. Rauði krossinn vinnur einnig úr hinum fjölmörgu boðum um aðra aðstoð sem borist hafa þeim beint.

Hinir flottu aðstandendur þessa Facebook viðburðar hafa sett upp aðfangaskráningarsíðu sem mörg hver ykkar hafið nýtt til að skrásetja frjáls framlög til að geta tekið á móti flóttamönnum og skilst mér að þau munu afhenda Rauða krossinum gögnin þann 7. september.

Nokkuð hefur verið um fyrirspurnir vegna kostnaðar við móttöku flóttamanna. Það flækir svörin töluvert að um er að ræða nokkrar leiðir til móttöku flóttamanna. [...] Þessu til viðbótar höfum við verið að fara yfir hina ýmsu tölvupósta og símtöl sem hafa borist okkur, svara fjölmiðlum og sinna fjölmörgum öðrum verkefnum í aðdraganda þingsetningarinnar sem verður næsta þriðjudag. Ef ég hef enn ekki komist til að svara ykkur sem hafa haft samband beint við mig, þá vona ég að tími gefist til þess í dag eða á morgun. 

Að lokum vil ég enn á ný ítreka þakkir mínar. Góðvild ykkar og vilji til að hjálpa hefur snert mig djúpt,“ skrifar Eygló.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert