Skartgriparánið í Firði upplýst

mbl.is/Þórður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot í skartgripaverslun í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði í byrjun síðasta mánaðar, en karl á fertugsaldri hefur játað á sig verknaðinn. þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Ennfremur segir að verðmæti þess sem stolið var hlaupi á milljónum króna, en unnið sé að því að endurheimta þá muni sem stolið hafi verið. Talið sé að hluti þeirra hafi verið fluttir úr landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert