„Hluti af þeim sem hæst tala um beint lýðræði og aðkomu kjósenda er ekki umhugað um það þegar raða skal á lista fyrir kosningar. Nei, þá felst lýðræðið í einhverjum fléttum út og suður eða jafnvel listinn ákveðinn í bakherbergjum "eigendanna".“
Þetta segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag. Hann segir að þingræðið sé að sama skapi ekki nógu lýðræðislegt að mati sömu aðila á þeim forsendum að minnihlutinn ráði ekki nóg innan þess.
„Samt á að taka sem flestar ákvarðanir með þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem minnihlutinn hefur ekkert að segja. Og þrátt fyrir allan þennan áhuga á beinu lýðræði hefur meirihlutinn í borginni, sem samanstendur af flokkum sem hafa sérstakan áhuga á beinu lýðræði, ekki séð nokkra ástæðu til að fylgja þessum vilja sínum eftir.“