Hs Orka áformar að reisa um 9 MW rennslisvirkjun í efri hluta Tungufljóts í Biskupstungum, Brúarvirkjun, og hefur Mannvit lagt fram tillögu að matsáætlun fyrir hönd fyrirtækisins.
Orkuöflun HS Orku hefur til þessa að mestu byggst á jarðvarmavirkjunum, það er orkuveri í Svartsengi og Reykjanesvirkjun. Þær eru grunnaflsvirkjanir sem starfræktar eru nálægt málafli allt árið þar sem þær henta síður til að fylgja breytilegu álagi, segir í tillögunni.
Fyrirtækið hefur í seinni tíð gert samninga um kaup á orku frá litlum vatnsaflsvirkjunum til að styrkja stöðu sína á raforkumarkaði og með Brúarvirkjun er fetað áfram þá slóð.