Söngur Óðins ómar enn þá

Stuðningsmannasveitin Tólfan hefur gert lag Óðins Valdimarssonar að sínu og …
Stuðningsmannasveitin Tólfan hefur gert lag Óðins Valdimarssonar að sínu og syngur það ótt og títt.

Tólfan, stuðningsmannasveit íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur gert lagið Ég er kominn heim að sínu og sungið hástöfum.

Benjamín Hallbjörnsson, varaformaður Tólfunnar, tekur undir að lagið sé óopinbert lag Tólfunnar.

Lagið hefur gengið í endurnýjun lífdaga en á sunnudag var ákveðnum hápunkti náð þegar tíu þúsund áhorfendur á landsleik Íslands og Kasakstan sungu lagið, sem Óðinn Valdimarsson gerði frægt á sínum tíma.

Hér má hlýða á söng Tólfunnar: 

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/NkE1WoN0qaE" width="420"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert