Margir með heppnina með sér

Enginn var með allar aðaltölurnar réttar í Lottóinu í kvöld, en einn heppinn miðaeigandi veðjaði á réttar tölur í Jókernum og er tveimur milljónum króna ríkari. Þá voru sex miðaeigendur með fjóra rétta í Jókernum og fær hver um sig 100.000 kr. í vinning.

Þetta er fjórða vikan í röð sem lottópotturinn gengur ekki út og verður hann fimmfaldur næst. 

Hins vegar voru tveir sem skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hvor um sig rúmlega 220 þúsund krónur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert