Grunaður fjársvikari með barnaklám

Lögreglan segir að maðurinn sé undir rökstuddum grun um að …
Lögreglan segir að maðurinn sé undir rökstuddum grun um að hafa haft í vörslum sínum, og til dreifingar, þúsundir myndbanda og mynda sem sýni börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, í skrám á hörðum diskum og tölvuskýjum. AFP

Karlmaður sem er grunaður um umfangsmikil fjársvik og að hafa einnig undir höndum mikið magn af efni sem sýni börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt skal sæta gæsluvarðhaldi til 8. október. Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness frá 10. september.

Hæstiréttur segir að eftir að maðurinn, sem er erlendur ríkisborgari, losnaði úr gæsluvarðhaldi og var gert að sæta farbanni með dómi Hæstaréttar 27. júlí 2015 í öðru máli hafi lögregla haft til rannsóknar um þrjá tugi ætlaðra brota hans gegn 248. gr. almennra hegningarlaga auk brots gegn 244. gr. Þegar litið sé til þeirra brota og þeirrar brotahrinu sem hann er undir rökstuddum grun um að hafa haft í frammi eftir það má ætla að hann muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið.

Maðurinn á sér nokkra sögu fjársvika erlendis. Lögreglan segir að hann sé grunaður um umfangsmikil auðgunarbrot hér á landi, mestmegnis á þeim tíma sem hann var í farbanni. Að mati lögreglu sé maðurinn „vanaafbrotamaður sem lætur sér ekki segjast og hafi sýnt það í verki að hann hafi og muni halda brotum sínum áfram verði honum ekki gert að sæta gæsluvarðhaldi á nýjan leik.“

Fjársvik í farmiðakaupum og varsla á klámfengu efni

Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir, að lögreglan hafi frá í júní sl. haft til rannsóknar mál er varða ætlaða refsiverða háttsemi mannsins. Annars vegar ætluð fjársvik í farmiðakaupum, en rannsókn þess sé nú lokið. Hins vegar ætlaðar vörslur og dreifing kærða á myndum og myndböndum sem sýni börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, en rannsókn þess sé á lokastigum.

Maðurinn handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komu hingað til lands í …
Maðurinn handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komu hingað til lands í júní. mbl.is/Eggert

Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar þessara mála frá 17. júní sl. Þann 27. júlí sl. hafi Hæstiréttur hins vegar snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 27. júlí sl. og manninum gert að sæta farbanni til mánudagsins 17. ágúst.

Maðurinn hefur gengið laus frá 27. júlí og frá þeim tíma hefur lögregla fengið fjölda tilkynninga um ætluð auðgunarbrot hans. Þau hafi leitt til handtöku mannsins og krafðist lögreglustjóriþess að honum yrði á ný gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun. Hafi hann því sætt gæsluvarðhaldi frá 12. ágúst vegna rannsóknar þessara mála.

Ennfremur segir í greinargerðinni, að upphaf rannsóknar megi rekja til tilkynningar sem barst frá Icelandair um að maðurinn væri á leið hingað til lands og að farmiði hans hefði verið greiddur með illa fengnu greiðslukortanúmeri. Farmiðinn hefði verið bókaður í gegnum vef félagsins í ferðaleið með fluglegginn frá Glasgow-Keflavík-Seattle, 16. júní 2015, og til baka fluglegginn Seattle-Keflavík-Glasgow, 17. júní 2015.

Greiðsla að fjárhæð 3.526,95 pund, eða 722.178 kr. miðað við miðgengi Seðlabanka Íslands á kaupdegi, hefði verið innt af hendi á sama tíma, í gegnum vef félagsins. Nemi áætlað tjón Icelandair í það minnsta sömu fjárhæð.

Þúsundir mynda og myndbanda

 Var maðurinn handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komu hingað til lands, hinn 16. júní 2015. Degi síðar var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald og hefur hann sætt gæsluvarðhaldi frá 17. júní 2015, 24. júní 2015 og 22. júlí 2015. Rannsókn þess máls sé lokið.

Í greinargerðinni kemur einnig fram, að við meðferð ofangreinds máls hafi farið fram rannsókn á tölvubúnaði sem maðurinn hafði meðferðis og þar fundist fjöldi flugbókana á vegum kærða og greiðslukortanúmer sem tilheyrðu öðrum aðilum. Þá hafi fundist umtalsvert magn skráa sem geyma myndir og myndbönd af börnum, mestmegnis ungum drengjum, í kynferðislegum athöfnum.

Maðurinn er m.a. grunaður um að hafa brotist inn í …
Maðurinn er m.a. grunaður um að hafa brotist inn í tölvu gistiheimilis og þannig komist yfir kortanúmer erlendra ferðamanna. Hann hafi einnig komist yfir tölvupósta gistiheimilisins og gert tilraun til samskipta við væntanlega gesti. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan segir að maðurinn sé undir rökstuddum grun um að hafa haft í vörslum sínum, og til dreifingar, þúsundir myndbanda og mynda sem sýni börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, í skrám á hörðum diskum og tölvuskýjum. Í heild sé um að ræða 27 aðganga sem lögregla telur að maðurinn hafi haft umráð yfir og innihaldi slíkt efni. Lögregla hafi aðgengi að sex þeirra og sé skoðun á þeim langt á veg komin. Telji skrár sem innihalda slíkt efni á áttunda þúsund. Telur lögregla að mun meira magn af slíku efni sé að finna á þeim 21 aðgöngum sem eftir standa. Jafnframt hafi fundist gögn um það að maðurinn hafi dreift slíku efni til ótilgreindra aðila í spjallhópum á veraldarvefnum, sem kynferðislegar kenndir hafa til barna. Rannsókn þessa máls sé á lokastigum en beðið sé tölvugagna í gegnum bandarísku alríkislögregluna.

Grunur um ítrekuð fjársvik á meðan hann var í farbanni

Þá hefur lögreglan undanfarnar vikur haft til rannsóknar ætluð fjársvik mannsins í fjölda tilvika, frá þeim tíma sem honum var gert að sæta farbanni 27. júlí sl. Um sé að ræða pantanir á vöru og þjónustu með illa fengnum greiðslukortaupplýsingum á mörgum mismunandi kortanúmerum.

Maðurinn var handtekinn 6. ágúst 2015 á höfuðborgarsvæðinu er hann gerði tilraun til að sækja muni sem greitt hafði verið fyrir með stolnum greiðslukortaupplýsingum í vefverslun. Var honum sleppt degi síðar og hefur frá þeim tíma fjöldi áþekkra tilvika bæst við.

Maðurinn er auk þess grunaður um að hafa stölið fartölvu og myndavél. Jafnramt leikur grunur á að hann hafi brotist inn í tölvu gistiheimilis og þannig komist yfir kortanúmer erlendra ferðamanna. Hann hafi einnig komist yfir tölvupósta gistiheimilisins og jafnframt útbúið nýtt póstfang og gert tilraun til samskipta við komandi gesti gistiheimilisins.

Framburður mannsins með miklum ólíkndablæ

Lögreglan segir, að maðurinn hafi verið yfirheyrður fjórum sinnum frá því honum var gert að sæta farbanni, þar af þrisvar frá því honum var á ný gert að sæta gæsluvarðhaldi. Í fjórðu yfirheyrslu hafi maðurinn játað að hafa staðið að baki þeim auðgunarbrotum sem framangreind mál snúast um. Fram til þess hafi framburður hans í öllum atriðum verið ótrúverðugur og haldinn miklum ólíkindablæ að mati lögreglu.

Lögreglan segir að maðurinn sé grunaður um brot sem við liggi allt að sex ára fangelsi. Hún sagði ennfremur, að það væri nauðsynlegt að maðurinn sætti áframhaldandi gæsluvarðhaldi í ljósi þess að mikil hætta væri á að maðurinn myndi reyna að komast úr landi. Eða leynast og koma sér þannig undan málsókn eða fullnustu refsingar, gangi hann laus. 

Sem fyrr segir, er maðurinn erlendur ríkisborgari. Hann virðist ekki eiga nein tengsl við landið önnur en þau að ætluð brot hans séu til rannsóknar hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert