Norðurljósasýning yfir Mosfellsbæ

Úr myndbandinu.
Úr myndbandinu. Skjáskot af Youtube

Íbúar höfuðborgarsvæðisins urðu margir varir við norðurljós yfir borginni í nótt og var kvikmyndagerðarmaðurinn Viðar Freyr Guðmundsson einn þeirra. Að sögn Viðars tók hann eftir norðurljósunum um miðnætti í gær og stillti upp myndavél sinni fyrir utan hús sitt í Mosfellsbæ. Útkoman var þetta fallega myndband hér að neðan.

Sýningin stóð þó frekar stutt yfir að sögn Viðars en glæsileg var hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert