Fella niður tolla á landbúnaðarvörum

Allir tollar á unnar landbúnaðarvörur verða felldir niður, nema á …
Allir tollar á unnar landbúnaðarvörur verða felldir niður, nema á jógúrt. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Nýir samningar um viðskipti með landbúnaðarvörur tókust á milli Íslands og Evrópusambandsins í Reykjavík í dag. Samningaviðræður hafa staðið yfir undanfarna tvo daga. Samningarnir munu stuðla að auknu vöruúrvali og lægra vöruverði á Íslandi til hagsbóta fyrir neytendur, að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytum utanríkis-, sjávarútvegs- og landbúnaðarmála.

Vonir standa til að samningarnir geti tekið gildi í árslok 2016 eða byrjun árs 2017, að fenginni staðfestingu stofnana ESB og Íslands, en í þeim eru sögð felast veruleg ný tækifæri fyrir útflytjendur. 

„Ánægjulegt að ná samningum“

„Það er mjög ánægjulegt að hafa náð samningum um gagnkvæma niðurfellingu tolla sem mun hafa mjög jákvæð áhrif fyrir neytendur og mikil sóknarfæri til aukins útflutnings“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Samningarnir fela í sér að Ísland fellir niður tolla á yfir 340 nýjum tollskrárnúmerum og lækkar tolla á yfir 20 öðrum og ESB gerir almennt slíkt hið sama. Þá verða allir tollar á unnar landbúnaðarvörur felldir niður nema á jógúrt. Sem dæmi munu tollar falla niður á súkkulaði, pizzum, pasta,  bökunarvörum o.fl. Auk þessa eru tollar felldir niður eða lækkaðir á óunnum landbúnaðarvörum eins og t.d. villibráð, frönskum kartöflum, útiræktuðu grænmeti o.fl.

“Þetta er fagnaðarefni fyrir íslenska neytendur sem munu sjá þess stað í lækkuðu matvöruverði og útflytjendur sem munu vafalaust nýta sér þá möguleika sem í þessum samningum felast,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Báðir aðilar auki tollfrjálsa innflutningskvóta

Jafnframt er samkomulag um að báðir aðilar auki verulega tollfrjálsa innflutningskvóta m.a. fyrir ýmsar kjöttegundir og osta sem munu koma til framkvæmda á tilteknum aðlögunartíma. Á móti fær Ísland verulega hækkun tollfrjálsra innflutningskvóta fyrir skyr, smjör og lambakjöt auk nýrra kvóta fyrir alifugla- og svínakjöt og ost.

Samhliða var lokið samningi milli Íslands og ESB um gagnkvæma viðurkenningu á heitum afurða sem vísa til uppruna. Í meginatriðum felur samningurinn í sér að íslensk stjórnvöld skuldbinda sig til að vernda á yfirráðasvæði sínu heiti afurða sem vísa til uppruna og njóta verndar innan ESB.

Formlegar viðræður hófust við ESB árið 2012 og er nýjum samningum ætlað að koma í stað samnings frá 2001 um viðskipti með unnar landbúnaðarvörur og annars samnings frá 2007 um viðskipti með óunnar landbúnaðarvörur.

Samningarnir munu nú fara í lögfræðilega yfirferð og lokafrágang og verða lagðir fyrir til formlegs samþykkis ESB og íslenskra stjórnvalda.

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert