Hefur áhrif á ferðaþjónustuna

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. mbl.is/Ómar Óskarsson

Skapti Örn Ólafs­son, upp­lýs­inga­full­trúi hjá Sam­tök­um ferðaþjón­ust­unn­ar, seg­ir sam­tök­in hafa fengið tölu­vert af meld­ing­um frá fyr­ir­tækj­um í ferðaþjón­ust­unni vegna samþykkt­ar Reykja­vík­ur­borg­ar um að sniðganga vör­ur frá Ísra­el.

Hann seg­ir orð og álykt­an­ir hafa ábyrgð og síðan á þriðju­dag hafi ís­lensk fyr­ir­tæki fengið tölu­vert af fyr­ir­spurn­um, hat­ur­s­póst­um og eitthvað af af­bók­un­um vegna máls­ins. Skapti Örn seg­ir þetta sýna hversu viðkvæmt ástandið í ferðaþjón­ust­unni sé nú í heimi sam­fé­lags­miðla og nú­tíma fjöl­miðlun­ar, enda sé orðið fljótt að berast.

Skapti Örn seg­ir ísra­elska ferðmenn mik­il­væga fyr­ir ferðaþjónustuna hér á landi. „Þetta eru verðmætir ferðamenn sem kaupa vöru og þjónustu hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu hér landi á landi.“ Hann seg­ir aukn­ingu ferðamanna á Íslandi hafa verið um og yfir 20% síðastliðin ár þegar hún er um 4-5% ann­ars staðar í heim­in­um og því verði fólk að hafa í huga að orðum fylg­ir ábyrgð.

„Þetta er lýs­andi dæmi um það hvað ástandið er viðkvæmt þegar kem­ur að ferðaþjón­ustu, þetta snýst allt um orðspor og ímynd.“ Hann bend­ir á að þó svo að ákveðið hafi verið að draga til­lög­una til baka fyrr í dag sé skaðinn þegar skeður.

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir Icelandair hafa fengið þó nokkur viðbrögð við ákvörðun borgarstjórnar. „Á þessu stigi er fólk aðallega að láta okkur vita að það sé verið að fylgjast með og er að hvetja okkur til þess að beita okkur gegn þessum ákvörðunum.“ Hann segir athugasemdirnar koma frá viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum í ferðaþjónustunni en enn hafi þó ekki borist neinar afbókanir.

Þá segir Þóra Björk Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri ferðskrifstofunnar Nordic Visitor, að sér hafi borist póstar og athugasemdir vegna málsins. Hún segir fólk ekki gera greinarmun á því að hér sé um ákvörðun borgarstjórnar að ræða og tali um þetta sem ákvörðun Íslands. „Verið er að gagnrýna það að við séum að sniðganga ísraelskar vörur og þá ætlar fólk sér í staðin að hætta við að ferðast til Íslands.“ Hún segir ferðaskristofunni ekki hafa borist neinar beinar afbókanir en fólk sem hafi haft áhuga á að heimsækja landið sé frekar að hætta við. „Sumir af þessum póstum hljóma þannig að fólki hafi lengi langað og ætlað sér að koma til Íslands en sé nú hætt við.“

Skapti Örn Ólafsson, upp­lýs­inga­full­trúi hjá Sam­tök­um ferðaþjón­ust­unn­ar.
Skapti Örn Ólafsson, upp­lýs­inga­full­trúi hjá Sam­tök­um ferðaþjón­ust­unn­ar. Ljósmynd/Úr einkasafni
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert