Hefur skaðað meirihlutann í borginni

Dagur B Eggertsson
Dagur B Eggertsson

Ákvörðun borgarstjórnar um að sniðganga ísraelskar vörur hefur skaðað meirihlutann. Þetta segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Með því að vanda betur til verka þegar málið verði unnið áfram sé hugsanlega hægt að endurvinna traust, að því er segir á vef RÚV en rætt var við Dag í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.

„Ég held að þetta mál hafi verið sett fram af góðum hug til þess að undirstrika áherslu borgarinnar á mannréttindi. Við stóðum hins vegar þannig að því að það skaðaði bæði þann málstað og ég held að það hafi skaðað meirihlutann og það er bara eitthvað til að horfast í augu við finnst mér. Ég held að það skipti bara mjög miklu máli þegar við vinnum þetta mál áfram að við gerum það þá betur og með því þá endurvinnum við hugsanlega eitthvert traust,“ segir Dagur.

Hann segir að ekki hafi verið haft samband við utanríkisráðuneytið áður en tillagan var samþykkt en hann hafi rætt við utanríkisráðherra um helgina. Aðspurður um það hvort hann hefði íhugað afsögn vegna málsins segir Dagur að honum þyki það stór orð hjá fulltrúum minnihlutans að leggja það til. 

Dagur segir að meirihlutinn hafi ekki talið sig vera að fara á svig með lög með ákvörðun borgarstjórnar. Í samráðinu sem framundan sé verði farið yfir sjónarmið utanríkisráðuneytisins og fleiri. 

Sjá fréttina í heild á vef RÚV

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert