Setja upp stöðumælastaura við Þingvallaþjóðgarð

Guðlaugur Magnússon sem og Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður við undirritun …
Guðlaugur Magnússon sem og Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður við undirritun samningsins.

Félagið Bergrisi ehf. og Þingvallanefnd hafa gert með sér samning um uppsetningu á stöðumælastaurum við Þingvallaþjóðgarð, en hingað til hefur ekki verið tekið gjald fyrir þá þjónustu. Búnaðurinn og lausnin byggist á íslensku hugviti fyrir íslenskar aðstæður. Áætlað er að búnaðurinn fari í notkun um næstkomandi áramót. Þetta segir í tilkynningu frá Bergrisa.

Búnaður sem tekinn verður í notkun mun falla vel inn í landslagið þar sem hönnunin mun líkjast stuðlabergi og þola þau veðurskilyrði sem eru við Þingvelli, allan ársins hring.  Mögulegt verður að greiða með kredit- og debetkortum sem og með QR kóða lestur á forseldum bílastæðamiðum og bílastæðakortum þannig að allir þeir sem nýta þurfa þjónustuna í tengslum við ferðamannaþjónustu munu geta nýtt sér stöðumælastaurana með einföldum hætti. 

Guðlaugur Magnússon framkvæmdastjóri Bergrisa segir í tilkynningunni að samningurinn marki það skref sem þurfti að taka í tengslum við þjónustu við ferðamannaiðnaðinn sem og við bætta þjónustu við ferðamenn sem koma til landsins almennt.

„Markmið Bergrisa ehf. er að auðvelda framkvæmdar- og þjónustuaðilum í ferðamannageiranum sem og öðrum að innheimta fyrir þær framkvæmdir sem nauðsynlegar eru eins og bílastæði og salernisaðstöðu til að mynda. Hugvit Bergrisa mun auðvelda þá vegferð að veita ferðamönnum eins góða þjónustu og við viljum og okkur íslendingum ber að veita. Mikil uppbygging þarf að eiga sér stað í ferðamannageiranum hvað varðar öryggi, hreinlæti og þjónustu. Hugbúnaðarlausnir Bergrisa ehf. munu auðvelda þá uppbyggingu.  Gjaldtaka er nauðsynleg svo að uppbygging á ferðamannastöðum verði að veruleika,“ segir Guðlaugur.

Guðlaugur segir að með nýjum aðferðum í gjaldtöku verði hægt að sérsníða þjónustu að þörfum hvers viðskiptavinar sem skili sér í betri þjónustu og aukum tekjum fyrir alla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert