Flóttafólk í autt húsnæði ÍLS?

Eygló bendir á að það sé sjóðsins að ákveða hvernig …
Eygló bendir á að það sé sjóðsins að ákveða hvernig hann ráðstafar húsnæði í sinni eigu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Ég legg bara áherslu á að þetta er eitt af því sem við förum yfir, en það er náttúrulega Íbúðalánasjóður sem ráðstafar sínum eignum, ekki við í velferðarráðuneytinu,“ segir Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, um þá hugmynd að nýta tómt húsnæði sjóðsins fyrir flóttafólk.

Það var Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem varpaði hugmyndinni fram á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í dag, en hann benti á að sum þeirra sveitarfélaga sem hefðu boðið fram aðstoð sína væru í þeirri stöðu að eiga ekki autt húsnæði fyrir flóttafólkið. Í samtali við mbl.is sagði Halldór að í mörgum þeirra stæði hins vegar autt húsnæði í eigu Íbúðalánasjóðs. Nefndi hann Ölfus og Árborg í þessu samhengi, og sagði þetta einnig eiga við um sveitarfélög á Vestfjörðum og víðar.

„Það hafa verið ræddir ýmsir valkostir sem snúa að húsnæðismálum,“ segir Eygló, en bendir á að eignir sjóðsins séu mismargar eftir svæðum. „Sjóðurinn vill náttúrulega hafa sitt húsnæði í notkun en þeir hafa bent á að sumt af því húsnæði sem er tómt er það einfaldlega vegna þess að það er ekki í lagi; ástandið á því er það slæmt að þeir hafa ekki viljað leigja það út eða það hefur ekki gengið að selja það.“

Hún segir að allir möguleikar verði skoðaðir í stöðunni.

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert