Endurupptökunefnd með of mikil völd

Áður en sérstök endurupptökunefnd tók til starfa 2013 fjölluðu dómarar …
Áður en sérstök endurupptökunefnd tók til starfa 2013 fjölluðu dómarar Hæstaréttar um beiðnir um endurupptöku dómsmála. mbl.is/Styrmir Kári

Skúli Magnússon, héraðsdómari og dósent við lagadeild Háskóla Íslands, sem jafnframt er formaður Dómarafélags Íslands, telur að endurupptökunefnd hafi fengið of mikil völd í hendur.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að vafasamt sé að fyrirkomulag við meðferð á beiðnum um endurupptöku dómsmála standist grundvallarreglur stjórnarskrárinnar um sjálfstæði dómsvaldsins og réttláta málsmeðferð.

Skúli segir að þarna sé stjórnvaldsnefnd í raun komin með vald til að fella dóma úr gildi og leggja fyrir dómstóla að taka mál fyrir að nýju.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert