Á g-streng einum fata

G-strengur er klæðalítil flík að hausti til á Íslandi
G-strengur er klæðalítil flík að hausti til á Íslandi Af vef Wikipedia/Jack Versloot

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók konu í g-streng einum klæða og  í annarlegu ástandi á Hverfisgötu um níu leytið í gærkvöldi.

Konan var óviðræðuhæf vegna vímu og því vistuð í fangageymslu í nótt og þar verður hún þangað til ástand hennar lagast.

Sjá nýja frétt um málið: Var ekki beitt ofbeldi

Síðdegis í gær var síðan ölvaður maður handtekinn í Lækjargötu við Bankastræti.  Maðurinn hljóp fyrir bíla í umferðinni og skapaði með því hættu fyrir sig og aðra. Hann gistir fangageymslu og verður þar til ástand hans lagast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert