Forystumenn skora á Ólöfu

Hópur Sjálfstæðismanna skorar á Ólöfu Nordal að bjóða sig fram …
Hópur Sjálfstæðismanna skorar á Ólöfu Nordal að bjóða sig fram til varaformanns. mbl

Tíu núverandi og fyrrverandi forystumenn innan Sjálfstæðisflokksins víðs vegar af landinu hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir skora á Ólöfu Nordal innanríkisráðherra að gefa kost á sér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem fram fer dagana 23.-26. október.

„Störf Ólafar sem þingmaður, ráðherra og leiðtogi tala sínu máli. Viðbrögð hennar við þeim verkefnum sem lífið hefur fært henni hafa einkennst af æðruleysi og eru til marks um ágæti hennar. Án þess að á nokkurn sé hallað teljum við Ólöfu vera hæfasta sjálfstæðismannin á landinu öllu til að leiða flokkinn, ásamt Bjarna Benediktsyni formanni, í átt að víðsýnni umbótastefnu á grundvelli einstaklings- og atvinnufrelsis með hagsmuni þjóðarinnar allrar að leiðarljósi,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni en núverandi varaformaður er Hanna Birna Kristjánsdóttir alþingismaður og forveri Ólafar á ráðherrastóli.

Frétt mbl.is: Skorað einróma á Ólöfu

Yfirlýsingin í heild:

„Undirrituð skora hér með á Ólöfu Nordal, innanríkisráðherra, að gefa kost á sér til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem hefst 23. október.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur frá stofnun verið sú stjórnmálahreyfing sem Íslendingar treysta best til að stjórna sameiginlegum hagsmunum landsmanna. Hann hefur komið að landsstjórninni í 22 af þeirri 31 ríkisstjórn sem mynduð hefur verið frá stofnun hans og veitt 15 þeirra forystu. Á grundvelli stefnu Sjálfstæðisflokksins hefur Ísland brotist úr fátækt til velmegunar.
Stefna Sjálfstæðisflokksins á enn sem fyrr erindi við samtímann. Að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins á þessu kjörtímabili hefur tekist að tryggja að framtíð Íslands er nú vonum framar björt.

Störf Ólafar sem þingmaður, ráðherra og leiðtogi tala sínu máli. Viðbrögð hennar við þeim verkefnum sem lífið hefur fært henni hafa einkennst af æðruleysi og eru til marks um ágæti hennar. Án þess að á nokkurn sé hallað teljum við Ólöfu vera hæfasta sjálfstæðismannin á landinu öllu til að leiða flokkinn, ásamt Bjarna Benediktsyni formanni, í átt að víðsýnni umbótastefnu á grundvelli einstaklings- og atvinnufrelsis með hagsmuni þjóðarinnar allrar að leiðarljósi.

Miðvikudaginn 30. september 2015

Ásbjörn Óttarsson, fyrrverandi alþingismaður, Snæfellsbæ
Ásdís Snót Guðmundsdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Arnarfjarðar
Berglind Sigurðardóttir, formaður Sjálfstæðisfélagsins í Hveragerði
Böðvar Sturluson, Stykkishólmi, formaður kjördæmasamtaka ungra sjálfstæðismanna í NV kjördæmi
Guðmundur Jón Helgason, formaður Sjálfstæðisfélags Seltirninga
Hafdís Gunnarsdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Ísafjarðar
Hjörtur Sigurðsson, formaður Sjálfstæðisfélagsins á Patreksfirði
Magni Þór Harðarson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð
Pétur Ottesen, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akranesi
Sölvi Sólbergsson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík“

Ólöf Nordal innanríkisráðherra.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert