Matvælastofnun uppfærir ráðleggingar um arsen

Ekki er mælt með því að börn borði hrísgrjón oftar …
Ekki er mælt með því að börn borði hrísgrjón oftar en fjórum sinnum í viku vegna arsens

Vörur sem seldar eru sem glútenfríar og innihalda mikið af hrísgrjónamjöli reyndust ekki innihalda arsen í miklu magni í nýrri sænskri rannsókn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun í kjölfar nýrrar skýrslu sænsku matvælastofnunarinnar um rannsókn á arseni í hrísgrjónum og hrísgrjónavörum á sænskum markaði. Í tilkynningu Matvælastofnunnar kemur einnig fram að rannsóknin staðfesti að það hafi ekki áhrif þó notaðar séu lífrænar ræktunaraðferðir vegna þess að arsen er náttúrulega í bergi í mjög mismiklu magni. „Því getur verið munur milli héraða og jafnvel milli akra,“ segir í tilkynningunni.

Matvælastofnun vinnur nú að því að uppfæra ráðleggingar stofnunnar til neytenda um arsen með tilliti til niðurstaðna þessarar framhaldsrannsóknar.

Fyrri frétt mbl.is: Ráðleggja börnum að sleppa hrískökum

„Tekin voru 102 sýni af m.a. hrísgrjónum (basmati, jasmine, long grain og hýðishrísgrjónum), hrísgrjónakökum, grjónagraut, morgunkorni, hrísgrjónadrykkjum og glútenfríu brauði, núðlum og glútenfríu pasta. Sýnin voru úr vörum frá öllum helstu framleiðendum auk þess að tekin voru sýni af lífrænum vörum,“ segir í tilkynningunni.

Helsta niðurstaða sænsku matvælastofnunarinnar er sú að arsen er til staðar í öllum hrísgrjónum þó í mismiklu magni. Eins og sagt var frá á mbl.is í gær er vegna þess nú mælt gegn því að börnum undir sex ára aldri séu gefnar rískökur þar sem þær innihalda mesta magnið af arseni. Þar að auki ættu börn ekki að borða hrísgrjón eða hrísgrjónavörur oftar en fjórum sinnum í viku. Einnig er mælt gegn því að fullorðnir borði hrísgrjón eða hrísgrjónavörur daglega.

Í skýrslunni kemur einnig fram að brún hrísgrjón innihaldi mesta arsenið. Þrátt fyrir að almenna ráðleggingin sé að neyta heilkorna vöru, heilsunnar vegna á það ekki við hrísgrjón. Svíar ráðleggja að borða brún hrísgrjón bara stöku sinnum. 

Í samtali við mbl.is í gær sagði Ingibjörg Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Matvælastofnun að sænska rannsóknin eigi vel við hér á landi enda borða Íslendingar að miklu leyti sömu hrísgrjónavörur og Svíar. Nú mun stofnunin leggjast yfir skýrsluna til að meta hvort sænsku ráðleggingarnar eigi við hér á landi.

Fyrri frétt mbl.is: Niðurstöðurnar eiga vel við Ísland

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert