Norðurþing hafði betur í Útsvari

Lið Norðurþings.
Lið Norðurþings. Skjáskot af RÚV

Lið Norðurþings sigraði í viðureign liðsins gegn liði Sandgerðis í spurningaþættinum Útsvari sem var í beinni útsendingu á RÚV í kvöld. 

Urðu loka­töl­ur 52-48, Norðurþingi í vil. 

Sigurlið Norðurþings skipuðu þau Daníel Freyr Birkisson, Kolbrún Ada Gunnarsdóttir og Arnar Þór Stefánsson.

Í liði Sandgerðis voru Einar Valgeir Arason, Bylgja Baldursdóttir og Andri Þór Ólafsson.

Lið Sandgerðis.
Lið Sandgerðis. Skjáskot af RÚV
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert