Orkufyrirtæki og Landsbjörg í samstarf

Á meðfylgjandi mynd má sjá Lúðvík B. Ögmundsson frá Landsneti, …
Á meðfylgjandi mynd má sjá Lúðvík B. Ögmundsson frá Landsneti, Sigurð Guðna Sigurðsson frá Landsvirkjun, Örlyg Jónasson frá RARIK og Smára Sigurðsson, fomann Slysavarnafélagsins Landsbjargar, eftir að samningurinn var undirritaður í dag. Mynd/Landsbjörg

Í dag var skrifað undir samstarfssamning milli  Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Landsnets hf., Landsvirkjunar og RARIK um aðstoð björgunarsveita við veitufyrirtækin í vá og við önnur tilvik eða atburði þar sem aðstoðar er óskað.

Slysavarnafélagið Landsbjörg tryggir að í viðbragðskerfi félagsins séu skilgreindir verkferlar sem nýttir verða þegar fyrirtækin þurfa á að halda. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að það skuli gert með skipulögðum æfingum björgunarsveita í samstarfi við starfsmenn raforkufyrirtækjanna. Einnig mun Björgunarskólinn veita starfsfólki fyrirtækjanna aðgang að fræðslu samkvæmt námskrá skólans eða með sérsniðnum námskeiðum sé þess óskað.

Framlag raforkufyrirtækjanna felst í árlegum styrk til Slysavarnafélagsins Landsbjargar næstu þrjú árin. Einnig munu þau veita félögum SL nauðsynlega fræðslu sem m.a. snýr að öryggi þeirra í tengslum við verkefni sem þarf að vinna í þeirra þágu.

Smári Sigurðsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar fagnar samningnum og segir hann skipta miklu máli fyrir samfélagið allt. „Í raun er það öryggismál að þegar rafmagnsrof verður, standi það eins stutt og hægt er. Við eigum sérhæfðan búnað og tæki og öflugan mannskap til að aðstoða raforkufyrirtækin á neyðarstundu.“

Forsvarsmenn raforkufyrirtækjanna ítreka í tilkynningunni að hér sé ekki um styrktarsamning að ræða heldur samstarfsamning. Samstarf þeirra við Slysavarnafélagið Landsbjörg hafi staðið frá árinu 2006 og þótt það sé rekstrarlegs eðlis fyrir fyrirtækin sé það einnig öryggismál fyrir almenning og atvinnulífið í landinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert