880 börn hafa leitað til sálfræðings SÁÁ

Álfurinn ein helsta fjáröflunarleið SÁÁ
Álfurinn ein helsta fjáröflunarleið SÁÁ Eggert Jóhannesson

SÁÁ hefur boðið sálfræðiþjónustu fyrir börn áfengis- og vímuefnasjúklinga frá 1. apríl 2008. 880 börn hafa nú nýtt þjónustuna, 465 stúlkur og 415 drengir. 773 þessara barna eru búsett á höfuðborgarsvæðinu en 107 á landsbyggðinni.

Í upphafi ársins 2015 voru tæplega 70 börn á biðlista og var allt að árs bið eftir viðtali hjá þeim eina sálfræðingi sem starfaði við þjónustuna á þeim tíma en frá 1. mars 2015 hafa tveir sálfræðingar sinnt sálfræðiþjónustu barna í fullu starfi hjá SÁÁ.

Í dag eru um 30 börn á biðlista og biðtíminn styttist hröðum skrefum. Þau börn sem eru að koma til viðtals í fyrsta skipti í dag hafa verið á biðlista frá því í ágúst, segir í frétt á vef SÁÁ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert