Helstu niðurstöður um Héðinsfjarðargöngin, sem kynntar voru í gær á málþingi í tilefni af fimm ára afmæli ganganna, eru að þau hafa haft jákvæð áhrif á sveitarfélagið Fjallabyggð.
Helst finnst Ólafsfirðingum stjórnendur sveitarfélagsins hygla Siglfirðingum, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Göngunum var ætlað að efla atvinnulíf, verslun og þjónustu og snúa við neikvæðri byggðaþróun á norðanverðum Tröllaskaga. Hefur hagur íbúa Fjallabyggðar vænkast verulega í samanburði við aðra landsmenn eftir hrun og opnun ganganna, segir í blaðinu.