43 bíða eftir hjúkrunarrými á Suðurnesjum

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Mynd úr safni.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

43 sjúkir aldraðir bíða eftir hjúkrunarrými á Suðurnesjum. Hjúkrunarrými á Suðurnesjum ættu að vera 141 en eru aðeins 118. Þetta kemur fram í ályktun sem lögð var fram á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum um helgina.

„Ljóst er að það stefnir í óefni ef ekkert verður gert í þessum málaflokki. Það hlýtur að vera forgangsmál að vinna nú þegar að fjölgun hjúkrunarrýma á Suðurnesjum,“ segir í ályktuninni. Stuðst er við reiknireglu velferðarráðuneytisins í ályktuninni þegar greint er frá því að það vanti 23 hjúkrunarrými upp á í sveitarfélaginu.  

„Reiknireglan gerir einnig ráð fyrir því að 10-15% rýma séu skilgreind sem hvíldarrými en í dag eru einungis 8 rými af 118 með þá skilgreiningu eða 6,7%. Sé gengið út frá forsendum miðspár Hagstofu Íslands um fjölgun aldraðra til ársins 2025 má búast við að öldruðum íbúum á Suðurnesjum fjölgi um 857 á næstu 10 árum og 1.708 á næstu 20 árum. Sé stuðst við reiknireglu ráðuneytisins þyrftu að vera 182 hjúkrunarrými á Suðurnesjum árið 2025 og 267 rými árið 2035,“ segir í ályktuninni.

Er þessi staða sögð með öllu óásættanleg fyrir íbúa Suðurnesja og krefst aðalfundurinn þess að stjórnvöld standi með sveitarfélögunum á Suðurnesjum í þeirri viðleitni að byggja upp hjúkrunarþjónustu við aldraða sem uppfyllir þörf, mæti nútíma- og framtíðarþörfum í málaflokknum og standist samanburð við önnur heilbrigðisumdæmi landsins.

„Fundurinn skorar því á velferðarráðherra að beita sér fyrir bragarbót í öldrunarþjónustu á Suðurnesjum þar sem ríki og sveitarfélögin verði leiðandi í nýrri nálgun í heildrænni þjónustu við aldraða.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert