„Beri litla virðingu fyrir íbúum“

Frá Reykjanesbæ.
Frá Reykjanesbæ. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórn Pírata í Reykjanesbæ segir að það sé aðför gegn beinu lýðræði og íbúalýðræði að ætla sér ekki að virða íbúakosningu sem mun fara fram dagana 8.- 20. nóvember nk. Vísað er til yfirlýsingar bæjarstjórans sem sagði að niðurstaðan myndi ekki skipta máli.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Pírata í bæjarfélaginu. 

„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur lýst því yfir að þau muni ekki virða þá kosningu sem fram á að fara í bæjarfélaginu 8. til 20. nóvember næstkomandi. Í viðtali sagði bæjarstjórinn: „Við látum kosninguna fara fram og framkvæmdum hafa eins vandlega og við getum en niðurstaðan í sjálfu sér skiptir engu máli.“

Að mati stjórnar Pírata í Reykjanesbæ er þetta aðför gegn beinu lýðræði og íbúalýðræði sem bendir til þess að bæjarstjórnin beri litla virðingu fyrir íbúum Reykjanesbæjar sem skv. 102. gr. sveitarstjórnarlaga hafa rétt til áhrifa á stjórn sveitarfélagsins, meðal annars með íbúakosningum, skv. 107. gr. sömu laga,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá segja Píratar að þeir undrist þær yfirlýsingar sem bæjarstjórnin hafi látið hafa eftir sér í þessu máli. Yfirlýsingarnar bendi til þess að bæjarstjórninni séu hugsanlega aðrir hagsmunir en hagsmunir íbúa sveitarfélagsins efst í huga í þessu máli. Þá sæti það furðu að bæjarstjórnin telji sig hafa umboð til þess að virða að vettugi niðurstöðu meirihluta íbúa sveitarfélagsins fari svo að hún verði þeim ekki að skapi.

„Stjórn Pírata í Reykjanesbæ hvetur bæjarstjórn Reykjanesbæjar til að gera úrslit íbúakosninganna í nóvember bindandi, hver sem þau kunna að verða, eða útskýra vandlega annarsvegar á hvaða hátt niðurstaða kosninganna verður ráðgefandi og hinsvegar hvernig lögbundnum rétti íbúa til að hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins er fullnægt með þeim hætti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert