Brotist inn á þremur stöðum í nótt

mbl.is/Eggert

Tilkynning barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan ellefu í gærkvöldi um að tveir karlmenn hefðu brotist inn í íbúðarhús við Austurbrún í Reykjavík. Þegar lögreglan kom á vettvang lögðu mennirnir á flótta en voru handteknir skömmu síðar. Þeir gista nú fangageymslur og er málið í rannsókn.

Ennfremur var tilkynnt um innbrot í leikskóla í Breiðholti um klukkan hálf tvö. Farið hafði verið inn um glugga og rótað þar innandyra. Ekki liggur fyrir hverju var stolið.

Skömmu síðar, eða rúmlega tvö, barst lögreglu tilkynning um brotist hefði verið inn í verslun við Laugaveg í Reykjavík. Ölvaður maður hafði brotið rúðu og farið þar inn. Hann gistir nú fangageymslur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert