Fóru út af við framúrakstur

mbl.is/Hjörtur

Fólksbifreið lenti utan vegar í Víkurskarði í gærkvöldi eftir að hafa reynt að taka fram úr stórri flutningabifreið. Tveir voru í bifreiðinni og sluppu þeir án alvarlegra meiðsla.

Ökumaðurinn mun hafa misst stjórn á bifreiðinni þegar hann reyndi framúrakstur en ekki liggur fyrir hvað olli því. Mennirnir voru fluttir til Akureyrar með sjúkrabíl til aðhlynningar.

Lán í óláni var að bifreiðin valt upp í hlíðina en ekki þeim megin sem snarbratt er niður hana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert