Kjörin formaður Hallveigar

Ída Finnbogadóttir, formaður Hallveigar.
Ída Finnbogadóttir, formaður Hallveigar. Ljósmynd/Hallveig

Ída Finnbogadóttir var kjörin formaður Hallveigar, félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins á föstudaginn. Ída tekur við formennsku af Höllu Gunnarsdóttur sem gegnt hefur embættinu undanfarið starfsár.

Með Ídu í nýrri stjórn Hallveigar eru Viktor Stefánsson, Branddís Ásrún Eggertsdóttir, Matthew Deaves, Steinunn Jónsdóttir, Snorri Freyr Vignisson og Halla Gunnarsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert