SGS semur við ríkið

Samningurinn verður á næstunni lagður fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins.
Samningurinn verður á næstunni lagður fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins. mbl.is/Styrmir Kári

Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins undirrituðu samning við samninganefnd ríkisins í dag vegna starfsfólks aðildarfélaga SGS hjá ríkisstofnunum.

Fram kemur í tilkynningu á vef SGS, að samningurinn sé á svipuðum nótum og samið hafi verið um á hinum almenna markaði í vor og mun hann gilda frá 1. maí síðastliðnum.

„Hækkun frá 1. maí er 25.000 krónur. Þann fyrsta júní árið 2016 hækka laun um 5,5% að lágmarki 15.000 krónur auk breytinga á launatöflu. Ári síðar hækka laun um 4,5% og 1. júní 2018 hækka laun um 3%. Samningurinn gildir til 31. mars árið 2019 og kemur þá til sérstök eingreiðsla 1. febrúar 2019 uppá 45.000 krónur fyrir starfsfólk í fullu starfi og hlutfallslega fyrir starfsfólk í hlutastarfi,“ segir í tilkynningunni.

„Lágmarkslaun eru hækkuð til samræmis við það sem samið var um á hinum almenna vinnumarkaði og verða 300.000 krónur frá 1. júní 2018 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun. Framlag í þróunar- og símenntunarsjóði verður hækkað í 0,82% auk þess sem aukið framlag verður sett í stofnanasamninga samkvæmt sérstakri bókun,“ segir jafnframt.

Þá segir, að samningurinn verði á næstunni lagður fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins.  Félög sem veitt hafi SGS umboð muni halda sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu. Þá hvetur SGS alla félagsmenn á kjörskrá til að nýta atkvæðisrétt sinn og greiða atkvæði með samningnum.

Helstu atriði samninginsins:

  • Kjarasamningurinn felur í sér verulegar launahækkanir við upphaf samnings þar sem  launataxtar hækka um 25.000 kr. eða að meðaltali um 9,78%.
  • Launataxtar hækka um 15.000 kr. hinn 1. maí 2016 auk leiðréttingar á launatöflu sem jafngildir 5,9% hækkun að meðaltali.
  • Hinn 1. maí 2017 hækka launataxtar um 4,5%
  • Hinn 1. maí 2018 hækka laun um 3%.
  • Sérstök eingreiðsla kemur 1. febrúar 2019 að upphæð kr. 45.000, miðað við þá sem eru í fullu starfi 1. janúar 2019 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.
  • Lagðar verða til 30 milljónir árlega árin 2016 – 2018 til þess að samræma stofnanasamninga þar sem horft verður til þess að leiðrétta sérstaklega þá hópa sem eru með lægri röðun í launatöflu en aðrir sambærilegir hópar.
  • Framlag í fræðslusjóð eykst úr 0,67% í 0,82% sem er mjög jákvætt skref til þess að efla félagsmenn enn frekar í starfi.
  • Launataxtar fyrir tímamælda ákvæðisvinnu í ræstingum hækka um tæplega 34% á samningstímanum.
  • Tekjutryggingin hækkar um 86.000 kr. á samningstímanum og verður komin í 300.000 kr. 1. maí 2018.
  • Orlofsuppbót hækkar um 21,5% á samningstímanum og fer í 42.000 kr. við upphaf samnings en verður komin í 48.000 kr. í lok samnings.
  • Desemberuppbót hækkar um tæplega 21% og fer í 78.000 kr. á árinu 2015 en 89.000 í lok samningstíma.

Samninginn í heild sinni má nálgast hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert