Skyr verndað vörumerki í Finnlandi

Ólöglegt skyr frá Arla verður að fjarlægja.
Ólöglegt skyr frá Arla verður að fjarlægja. mbl.is/Helgi Bjarnason

Mjólkursamsalan og umboðsmenn hennar í Finnlandi hafa fengið úrskurðað lögbann á sölu sænska mjólkurrisans Arla á vörum sem merktar eru sem skyr.

Arla þarf að fjarlægja allt sitt skyr úr verslunum þar í landi áður en vika er liðin, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

MS og umboðsmenn hafa unnið mikinn markað fyrir skyr í Finnlandi. Þeir hafa talið sig eiga vörumerkið skyr vegna notkunar þess á markaðnum í mörg ár. Þeir kröfðust lögbanns þegar Arla hóf sölu á vöru undir merkjum skyrs og nú hefur dómstóllinn fallist á rök þeirra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert