Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um klukkan sjö í morgun um konu á fimmtugaldri þar sem hún svæfi ölvunarsvefni inni í bifreið fyrir utan verslun í Garðabæ.
Hafði hún komist inn í ólæsta bifreið starfsmanns verslunarinnar og lagst þar fyrir en starfsmaðurinn vissi engin deili á henni. Konan gat ekki gefið nein deili á sér og var því vistuð í fangaklefa þangað til áfengisvíman rennur af henni.