Bíl stolið í Reykjavík

Bílnum sem sést á þessum myndum var stolið í Reykjavík í nótt. Grunur leikur á því að hann hafi verið notaður í tengslum við nokkur innbrot á Suðurlandi í nótt og í morgun.

Lögreglu grunar að bílnum  hafi verið ekið austur um umdæmið og að minnsta kosti austur fyrir Vík. Þeir sem einhverjar hugmyndir hafa um ferð þessarar bifreiðar eða vita hvar hún er niðurkomin nú þegar, er bent á að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi í síma 892 7592.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert