Blaut byrjun á október

Rigning í miðborginni.
Rigning í miðborginni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Byrjun októbermánaðar hefur verið óvenjublaut víða um landið, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu.

Trausti Jónsson veðurfræðingur benti á það í hópi Hungurdiska á Fjasbók í gær að það hefði ekki tekið úrkomuna nema sex daga að ná upp fyrir meðaltal októbermánaðar alls (á árunum 1971 til 2000) á fimm veðurstöðvum. Á 18 stöðvum var úrkoman orðin meiri en mælst hefur áður sömu daga. Á Vatnsskarðshólum og í Drangshlíðardal hafði þegar mælst yfir 200 mm úrkoma.

Trausti segir í Morgunblaðinu í dag að búið væri að mæla úrkomu á Vatnsskarðshólum í tæplega 40 ár og fyrstu dagar október hefðu ekki verið blautari þar en nú síðan mælingar hófust.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert