Þau voru ótrúlega falleg norðurljósin sem blöstu við Akureyringum í gærkvöldi líkt og meðfylgjandi myndir sýna.
Norðurljósin hafa sést mjög vel undanfarna daga og má búast við því að svo verði einnig í kvöld en hér er hægt að fylgjast með norðurljósaspá Veðurstofu Íslands.