Ræddu hvernig efla mætti ytri landamæri svæðisins

Hópmynd frá ráðstefnunni. Gunnar Bragi tekur sig vel út ofarlega …
Hópmynd frá ráðstefnunni. Gunnar Bragi tekur sig vel út ofarlega til vinstri.

Fjölþjóðleg ráðstefna utanríkisráðherra og dóms- og innanríkisráðherra um þann gífurlega vanda sem við er að etja í Evrópu vegna straums flóttamanna um Balkanskaga og austanvert Miðjarðarhafssvæðið, fór fram í kvöld í Lúxemborg.

Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu sátu ráðstefnuna Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytisins fyrir hönd Íslands. Fyrr í dag tók Ólöf Nordal innanríkisráðherra þátt í fundi Schengen ríkja þar sem meðal annars var fjallað um hvernig efla megi ytri landamæri svæðisins. Auk ríkja ESB og samstarfsríkjanna í Schengen þ.m.t. Íslands, tóku þátt í ráðstefnunni öll ríki Balkanskaga,  Tyrkland, Jórdanía og Líbanon og fulltrúar alþjóðastofnana, m.a. Flóttamannastofnum Sameinuðu þjóðanna, Matvælastofnun SÞ og Evrópulögreglunnar, Europol.

Tilefni ráðstefnunnar var að ræða viðbrögð við hinum stöðuga straumi flóttamanna frá botni Miðjarðahafs, m.a.:

  • hvernig best megi styðja við þau ríki sem bera þyngstu byrðina af flóttamannastraumnum frá Sýrlandi, þ.e. Tyrkland, Jórdaníu og Líbanon. 
  • hvernig bæta megi móttöku og meðferð hælisumsókna í ríkjum sem flestir flóttamenn fara um.  
  • leiðir til að efla samvinnu í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi við smygl á fólki. 
  • leiðir til að ráðast að rótum vandans og koma á friði og stöðugleika á svæðinu. 
  • samvinna við önnur ríki sem flóttamenn koma frá.


Á ráðstefnunni greindi utanríkisráðherra frá nýlegri ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um aukið framlag til aðstoðar flóttafólki, bæði vegna þeirra sem sækja um hæli á Íslandi og þeirra sem dvelja í flóttamannabúðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert