Rafmagnslaust í Dalabyggð

Frá Búðardal.
Frá Búðardal. mbl.is/Sigurður Bogi

Rafmagn fór af í Dalabyggð rétt fyrir kl. 18.50 í kvöld. Unnið er að því að koma rafmagni á aftur, að því er segir í tilkynningu frá Rarik.

Uppfært 19.55

Vinnuflokkur Rarik vinnur að bilanaleit, en rafmagn komst aftur á að Álfheimum frá Búðardal og frá Stykkishólmi að Gunnarsstöðum á Skógarströnd um kl. 19.45.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert