Sækir ársfund AGS og Alþjóðabankans

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra fer fyrir sendinefnd ráðuneytisins sem sækir dagana 9.-11. október ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og Alþjóðabankans í Lima í Perú. 

Fram kemur í fréttatilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu að helstu umræðuefni fundarins verði staða og þróun efnahagsmála á heimsvísu en sendinefnd Íslands fundi m.a. með fjármálaráðherrum, fjármálastofnunum, matsfyrirtækjum og starfsfólki AGS. Í framhaldi af fundinum sæki Bjarni heimsfund Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um áhrif bættra mælikvarða á velferð á stefnumótun stjórnvalda.

Heimsfundur OECD verður haldinn í Guadalajara í Mexíkó og stendur yfir dagana 13.-15. október. Þar taki ráðherrann þátt í pallborði um hvaða áhrif ný viðhorf til mælinga á velferð hafi nú þegar haft á stefnumótun stjórnvalda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert