Skemmdarvargar í annarlegu ástandi

mbl.is/Júlíus

Um tíu leytið í gærkvöldi var tilkynnt um rúðubrot í verslun í austurhluta borgarinnar og að tveir menn hafi sést hlaupa frá vettvangi.  Annar maðurinn var handtekinn skömmu síðar og vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls en hann var í mjög annarlegu ástandi.

Um þrjú í nótt var síðan maður í annarlegu ástandi handtekinn í miðborginni  grunaður um eignaspjöll en hann er grunaður um að hafa brotið rúðu á hóteli  við Laugaveg.  Maðurinn vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hann. 

Rúmlega átta í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot í geymslur við Tröllakór. Þaðan var stolið verkfærum, útilegubúnaði ofl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert