Tókst á loft á Keflavíkurflugvelli

Atvikið átti sér stað í gærdag þegar ýta átti flugvélinni …
Atvikið átti sér stað í gærdag þegar ýta átti flugvélinni út úr stæði. Ljósmynd/Isavia

Verr hefði getað farið en raun varð þegar flugvél tók af stað úr stæði á Keflavíkurflugvelli með þeim afleiðingum að gámur sem stóð nærri henni tókst á loft og hafnaði á dráttartæki.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. 

Atvikið átti sér stað í gærdag þegar ýta átti flugvélinni út úr stæði áður en hreyflar hennar yrðu ræstir. Þess í stað fór vélin af stað undir eigin afli og var henni beygt til hægri með þeim afleiðingum að hreyflar hennar feyktu gáminum á vinnutækið.

Gámurinn hafði staðið milli  umræddrar vélar og fraktvélar áður  en hann tókst á loft. Má leiða líkur að því að hefði vinnutækið ekki verið staðsett milli vélanna hefði gámurinn hafnað á síðarnefndu vélinni.

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert