Hálka á Holtavörðuheiði

Séð á veginn yfir Holtavörðuheiði úr vefmyndavél Vegagerðarinnar nú í …
Séð á veginn yfir Holtavörðuheiði úr vefmyndavél Vegagerðarinnar nú í morgun. mynd/Vegagerðin

Hálka er á Holtavörðuheiði og á Öxnadalsheiði. Hálkublettir eru á flestum fjallvegum í öllum landshlutum að sögn Vegagerðarinnar.

Vakin er athygli á að hálendisvegir eru ekki í þjónustu á þessum árstíma og færð er ekki  könnuð með reglubundnum hætti. Þó er vitað að færð er þar sumstaðar farin að spillast, einkum norðanlands og er Eyjafjarðarleið lokuð. Einnig geta ýmsar leiðir verið varasamar vegna síbreytilegs vatnsmagns í ám.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert